Hinn „sanni“ samfélagsandi!

Hugleiðing um tengsl, traust og samkennd

Í dag langar mig að leiða hugann að því hvernig samfélagsandi er ríkjandi meðal okkar Íslendinga þessi misserin. Ég velti fyrir mér af hverju við erum komin á þann stað sem við erum og hvaða þættir það eru sem helst mynda samfélagsanda okkar. Þegar við lesum fréttir, hlustum á þær eða horfum, þá er flestallt sem dregið er fram neikvætt á einn eða annan hátt. Sagt er frá stríði, árásum á saklausa borgara, morðum, slysum, verkföllum, fjársveltu kerfi og mannvonsku sem birtist í mismunandi myndum. Sumt er skýrt uppi á yfirborðinu en annað er falið þar til óhreinindin fljóta upp á yfirborðið á kostnað okkar borgaranna þegar betur er að gáð. Það er afar sjaldan sem fréttamiðlar eru uppfullir af jákvæðu, skemmtilegu og gefandi efni, þó að slíkt slæðist sem betur fer með inn á milli.

Út frá þessu ímynda ég mér að slík stöðug neikvæðni hljóti að hafa djúpstæð áhrif á fólk dagsdaglega. Það er erfitt að láta þetta ekki snerta sig, jafnvel þótt fólk kjósi að horfa ekki, hlusta ekki eða lesa ekki fréttir, því umræðan er lifandi allt um kring á vinnustöðum, í skólum og í hversdagslegum samskiptum. Það getur því reynst fólki nánast ógerlegt að forðast þennan straum að öllu leyti.

En af hverju er ég að velta þessu upp núna? Jú, það er til komið af því að ég hef fundið svo sterkt fyrir breytingu í samfélaginu okkar á undanförnum árum og það ekki til batnaðar. Ég finn fyrir miklu meiri hörku, hroka, vanvirðingu, eiginhagsmunapoturum sem láta sig enga aðra varða og aukinni stéttarskiptingu. Þetta er ekki jákvæð þróun, þvert á móti. Hvar er hjálpsemin, umhyggjan, stuðningurinn, samkenndin, öryggið, jákvæðnin, traustið, frelsið og tilfinningin fyrir því að tilheyra – allt það sem hægt væri að kalla uppbyggilegan samfélagsanda? Það virðist vera eilíf barátta í gangi í samfélaginu þar sem allir þurfa að berjast fyrir sínu með kjafti og klóm, alveg sama hvert við snúum okkur, nema ef til vill fólkið sem á mestu peningana og heldur um stjórnvölinn. Er þetta virkilega svona sem við viljum hafa þetta, eða þurfum við að vera í eilífu innra stríði hvert við annað?

Hvað segja fræðin um þetta ástand?

Þegar ég skoða þessa upplifun mína í ljósi félags- og samfélagssálfræðinnar verður enn skýrara hvers vegna þessi þróun ristir svona djúpt. Í fræðunum er reyndar ekki talað um einn „sannan“ samfélagsanda í efnislegri merkingu, heldur er rýnt í hann í gegnum hugtök á borð við sálfræðilega samfélagstilfinningu (sense of community), félagsauð (social capital) og grunnþörfina fyrir að tilheyra (need to belong). Sálfræðingarnir David McMillan og David Chavis (1986) bentu á að sterk samfélagstilfinning byggist á fjórum meginstoðum: aðild og tilfinningalegu öryggi, gagnkvæmum áhrifum þar sem hver einstaklingur skiptir máli, því að þörfum fólks sé mætt í gegnum samstöðu og loks sameiginlegum tilfinningatengslum. Þegar harkan og eiginhagsmunapotið taka völdin er í raun verið að grafa undan öllum þessum fjórum stoðum samtímis.

Á sama hátt vekur sú aukna stéttarskipting og tortryggni sem ég finn fyrir áhyggjur þegar horft er til kenninga um félagsauð. Fræðimenn eins og Pierre Bourdieu (1986) og Robert Putnam (2000) hafa sýnt fram á að styrkur samfélaga felst í þeim tengslanetum, gagnkvæma trausti og óskráðu viðmiðum sem gera fólki kleift að vinna saman. Putnam (2000) gerir greinarmun á þéttbindandi tengslum innan náinna hópa og brúandi tengslum, ef svo má að orði komast, þvert á ólíka hópa í samfélaginu. Þegar fólk fer að líta á náungann sem keppinaut í eilífri lífsbaráttu rofna þessi ,,brúandi“ tengsl. Samfélagið klofnar þá í einangraða hópa þar sem sumir sitja við völd og auð á meðan aðrir upplifa sig utangarðs.

Þörfin fyrir að tilheyra og leiðin út úr innra stríði

Í félags- og þróunarsálfræði er þörfin fyrir að tilheyra talin ein af frumþörfum mannsins, alveg jafn nauðsynleg og fæða og skjól (Baumeister og Leary, 1995). Rannsóknir þeirra Roy Baumeister og Mark Leary (1995) sýna að tilfinningin fyrir því að tilheyra verður ekki til af sjálfu sér heldur krefst hún reglulegra, jákvæðra samskipta og varanlegs umhyggjusambands. Þegar daglegur fréttaflutningur og samfélagsumræðan einkennast af átökum, ásökunum og neikvæðni er hætt við að fólk fari í vörn og loki á þá hlýju og hjálpsemi sem annars býr í okkur. Til þess að við náum aftur að byggja upp uppbyggilegan samfélagsanda bendir Amy Edmondson (1999) á mikilvægi sálfræðilegs öryggis – að fólk geti treyst því að því sé mætt af virðingu en ekki hroka eða niðurlægingu.

Um leið minna fræðin okkur á að heilbrigður samfélagsandi þýðir ekki að allir þurfi að vera eins eða sammála um allt. Perkins og félagar (2002) benda á að of mikil krafa um einsleitni geti jafnvel þaggað niður nauðsynlega gagnrýni og útilokað þá sem skera sig úr. Lausnin felst því ekki í því að fela vandamálin heldur í því að breyta því hvernig við mætum hvert öðru. Ef við viljum hætta þessu eilífa innra stríði þurfum við meðvitað að rækta samkenndina, hlúa að brúandi tengslum milli ólíkra hópa og skapa samfélag þar sem rými er fyrir okkur öll – ekki bara þá sem standa efst í stiganum.

Ég læt hér staðar numið að sinni og þakka þeim sem lesa 🙂 Þessar hugleiðingar er aðeins brotabrot af því sem fer í gegnum höfuðið á mér þessa dagana en stundum getur verið hollt og gott að skrifa niður það sem manni liggur á hjarta 🙂

Takk fyrir mig og munum að hlúa að hverju öðru! Hjördís

Heimildir

Baumeister, R. F. og Leary, M. R. (1995). The need to belong: Desire for interpersonal attachments as a fundamental human motivation. Psychological Bulletin, 117(3), 497–529. https://doi.org/10.1037/0033-2909.117.3.497

Bourdieu, P. (1986). The forms of capital. Í J. Richardson (ritstj.), Handbook of theory and research for the sociology of education (bls. 241–258). Greenwood.

Edmondson, A. C. (1999). Psychological safety and learning behavior in work teams. Administrative Science Quarterly, 44(2), 350–383. https://doi.org/10.2307/2666999

McMillan, D. W. og Chavis, D. M. (1986). Sense of community: A definition and theory. Journal of Community Psychology, 14(1), 6–23. https://doi.org/10.1002/1520-6629(198601)14:1<6::AID-JCOP2290140103>3.0.CO;2-I

Perkins, D. D., Hughey, J. og Speer, P. W. (2002). Community psychology perspectives on social capital theory and community development practice. Journal of the Community Development Society, 33(1), 33–52. https://doi.org/10.1080/15575330209490141

Putnam, R. D. (2000). Bowling alone: The collapse and revival of American community. Simon og Schuster.